Maðurinn sem reyndi á jóladag að sprengja þotu á leið til Detroit í Bandaríkjunum í loft upp hefur verið ákærður fyrir verknaðinn.
Hinn 23 ára gamli Umar Farouk Abdulmutallab frá Nígeríu var yfirbugaður af farþegum vélarinnar er þeir áttuðu sig á fyrirætlan hans. Þotan var á leið frá Amsterdam til Detroit.
Bandaríska dómsmálaráðuneytið segir að sprengjuefni hafi fundist um borð í vélinni. Tilræðismaðurinn þarf nú að mæta fyrir rétt en þar sem hann slasaðist í átökum við farþega mun fyrsta stig réttarhaldanna fara fram á sjúkrahúsinu þar sem hann fær aðhlynningu.
Maðurinn flaug frá Laos til Amsterdam og þaðan til Detroit. Verið er að rannsaka hvernig hann komst með sprengjuefnin um borð í vélina. Sjálfur sagði hann lögreglunni að hann hefði tengsl við hryðjuverkasamtökin al-Qaeda og að hann hefði fengið sprengiefnið í Yemen. Þar voru efnin saumuð inn í nærfötin hans.
Fréttavefur
Morgunblaðsins greindi frá þessu.