Untitled Document
 :: Forsíða
 :: Fréttir
 :: Greinar
 :: Spjallið
 :: Myndasafn
 :: Ljósmyndakeppni
 :: Leikir
 :: Loftfaraskrá
 :: Auglýsingar
 :: Tenglasafn
 
 :: AIP-Flugmálahandbókin
 :: Notam
 :: Flugveður
 :: Flugvellir

Vefurinn Flugnet er hugsaður sem afþreyingar- og upplýsingarvefur fyrir flugmenn og áhugamenn um flug.

Vefurinn opnaði 12. janúar 2004.

Umsjónarmaður:
Sigurbjörn Ragnarsson

TOPP 10 VINSÆLUSTU TENGLARNIR!

Fara í tenglasafn >>
 

 




 

28.12.2009
Öryggisgæsla hert á mörgum flugvöllum
Flugfarþegar um allan heim hafa þurft að umbera hertar öryggisreglur í kjölfar misheppnaðrar tilraunar til að sprengja upp flugvél yfir Bandaríkjunum. Á sumum flugvöllum hefur það tekið flugfarþega margfalt lengri tíma en áður að skrá sig inn til flugs.

Á Schiphol flugvelli í Amsterdam hefur handfarangur farþega verið skoðaður ítarlega og leitað á þeim eftir atvikið á föstudag að beiðni bandarískra yfirvalda. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur nú til rannsóknar hvort rétt hafi verið staðið að öryggismálum á flugvellinum, þar sem hinn 23 ára gamli Nígeríumaður gat smyglað sprengiefnum um borð í flugvél á leið til Detroit.

Í London hafa farþegar British Airways til Bandaríkjanna þurft að gangast undir tvöfalda öryggisgæslu. Þeir sem fljúga með jólagjafir með sér hafa verið beðnir um að fjarlægja gjafapappírinn utan af þeim áður en gengið er um borð. Flugmálayfirvöld Þýskalands, Frakklands, Spánar, Portugal, Sviss, Ítalíu og Svíþjóðar hafa einnig tilkynnt að þar hafi öryggisgæsla verið aukin.

Í Asíu hefur farþegum Singapore Airlines á leið til Bandaríkjanna verið tilkynnt að þeir verði að vera komnir um borð í vélina klukkustund fyrir brottför og megi ekki hafa handfarangur nærri sér né hafa teppi yfir sér.

Fréttavefur Morgunblaðsins greindi frá þessu.
Prentvæn útgáfa

28.12.2009
Atli Steinn Guðmundsson skrifar:

Óeinkennisklæddum lögreglumönnum í farþegaflugi verður fjölgað í kjölfar atburðanna sem áttu sér stað í flugi milli Amsterdam og Detroit á jóladag.

Janet Napolitano hjá heimavarnastofnun Bandaríkjanna segir ekkert benda til þess að tilraun nígerísks verkfræðinema til að sprengja farþegaflugvél í loft upp í flugi frá Amsterdam til Detroit hafi verið hluti af alþjóðlegu hryðjuverkasamsæri. Þrátt fyrir það hefur óeinkennisklæddum og vopnuðum lögreglumönnum í bandarískum farþegaflugvélum verið fjölgað síðan atvikið átti sér stað en það hefur CNN-fréttastofan eftir öðrum og ónafngreindum heimildamanni hjá heimavarnastofnuninni.

Verkfræðingurinn verðandi hafði ekki annað upp úr krafsinu en að kveikja í buxunum sínum áður en skelfingu lostin áhöfn flugvélarinnar yfirbugaði hann með aðstoð annarra farþega en bandarísk flugmálayfirvöld líta málið engu að síður mjög alvarlegum augum eins og flugfarþegar um gervalla Evrópu fengu að reyna á eigin skinni þegar þeim var gert að mæta allt að fjórum klukkustundum fyrr en ella vegna herts öryggiseftirlits og sprengjuleitar og þykir mörgum borið í bakkafullan lækinn eftir allar þær tafir sem samgöngur í Evrópu hafa mátt sæta vegna fannfergis fyrir jólin...

28.12.2009

Mynd: Andrew Hunt
Framkvæmdastjórn japanska flugfélagsins Japan Airlines (JAL) íhugar nú alla þá möguleika sem félagið hefur og er einn þeirra að setja félagið í þrot. JAL fékk nýverið greiðslustöðvun en japanska ríkið þarf væntanlega að bjarga félaginu og ef af því verður þá er það í fjórða skiptið síðan árið 2001. Talsmaður JAL segir að allt verði reynt til þess að forða félaginu frá gjaldþroti.

Meðal aðgerða sem gripið verður til svo hægt verði að rétta rekstur JAL við, er að segja upp þúsundum starfsmanna og fækka áætlunarleiðum verulega.

JAL hefur fengið boð frá bæði American Airlines og Delta Air Lines um fjárhagslegan stuðning gegn því að þau fái minnihlutaeign í JAL. Þykir til mikils að vinna að komast að á Asíumarkaði þar sem JAL er með sterka stöðu.

Þetta kom fram á viðskiptavef Morgunblaðsins í dag.


  • Fara á spjallborð >>


    Flugmynda Leitarvél
    Stærsta Flugmyndasafnið á Netinu
    Flugvélategund... [ Hjálp ]
    Flugfélag... [ Hjálp ]
    Lönd / Flugvellir... [ Hjálp ]
    Flokkur... [ Hjálp ]
    Upphlaðið... [Hjálp]
    Stikkorð... [ Hjálp ]
    Með... [ Hjálp ]
    Raða Eftir...
    Takmörk...
    Sýna...


    Sýna einungis myndir sem eru til sölu.

    Sýna myndir. [ Hjálp ]

     


     
     
     



     


     
       

     





    © Sigurbjörn Ragnarsson - allur réttur áskilinn

    Hönnun vefs: Róbert Daníel Jónsson