:: Forsíða
 :: Fréttir
 :: Greinar
 :: Netviðtalið
 :: Spjallið
 :: Myndasafn
 :: Ljósmyndakeppni
 :: Leikir
 :: Loftfaraskrá
 :: Auglýsingar
 :: Tenglasafn
 
 :: Notam
 :: Veður
 :: Flugvellir

Vefurinn Flugnet er hugsaður sem afþreyingar- og upplýsingarvefur fyrir flugmenn og áhugamenn um flug.

Vefurinn opnaði 12. janúar 2004.

Umsjónarmaður:
Sigurbjörn Ragnarsson




 

Reglur Ljósmyndakeppni Flugnet.com sumarið 2006


Þátttakandi í keppni verður að vera skráður notandi í myndasafni Flugnet.com. Hver einstaklingur má aðeins hafa einn notenda-aðgang að vefnum. Komist upp að notandi sé að nota fleiri en einn aðgang, verða allar hans myndir dæmdar úr keppni og lokað verður á aðganginn.


Dómnefnd vefsins kýs um hvort mynd brjóti í bága við reglur vefsins. Ef meirihluti dómnefndar sér að mynd sé ekki samkvæmt reglum, verður henni vísað úr keppni undantekningalaust.


Almennar reglur

  • Myndir skal taka á stafræna myndavél og skila á jpeg sniði (.jpg)
  • Upplausn myndar er frjáls. Lágmark stærð mynda er 500px á annanhvorn kantinn og hámark stærð mynda er 1024px á breidd og 768px á hæð.
  • Hver þátttakandi má senda inn sex myndir á tímabilinu 1. júní til 1. september en einungis tvær myndir á mánuði, þ.e. tvær í júní, tvær í júli og tvær í ágúst. Ef þátttakandi sendir einungis inn eina mynd í mánuðinum fyrnist seinni mynd mánaðarins og því ekki hægt að senda inn þrjár næsta mánuð.
  • Myndina verður að taka innan tilsetts tímabils sem keppnin spannar.
  • Innsend mynd verður að vera tekin á einum lýsingartíma (e. exposure). Hvorki má bæta við hlutum úr öðrum myndum né teikna inn á myndina.
  • Heimilt er að laga minniháttar galla í myndum en samt sem áður er bannað að eyða, afrita, búa til eða færa þýðingarmikinn hluta myndarinnar. Gott er að þú takir fram allar breytingar sem gerðar eru á myndinni í reitinn "Lýsing myndar" til að auðvelda dómnefnd yfirferð á myndum. Einnig er mikilvægt að hafa réttar upplýsingar um myndefnið, þ.e. skráningu flugvéla tegund o.s.frv.
  • Allar breytingar á myndum sem eru gerðar í myndavélinni sjálfri eru leyfðar.
  • Ekki má bæta neinum texta við/á myndirnar eftirá.
  • Óheimilt er að stækka myndflöt (canvas) til neins annars en að búa til sýnilegan ramma sem er aðgreinanlegur frá myndinni.

Myndum sem kunna að brjóta gegn þessum reglum verður vísað úr keppni.
Tilraunir til að reyna að komast hjá reglunum með klókindum gætu líka orðið til þess að mynd verði vísað úr keppni. Tekið verður á hverju tilfelli fyrir sig.


Sé þess óskað af dómnefnd gætu þátttakendur þurft að senda inn óbreytta, upprunalega mynd eins og hún var tekin ásamt lýsingum á því hvernig myndin var unnnin eftir á í tölvu. Upprunalega myndin verður að innihalda EXIF upplýsingarnar gildar og óbreyttar. Ef ekki tekst að útvega myndina áður en 3 dagar líða frá því að óskað er eftir henni verður myndin dæmd úr keppni.


Hverja mynd má aðeins senda inn einu sinni, þrátt fyrir að myndin sé unnin ámismunandi vegu. Báðar myndirnar verða dæmdar úr leik ef þessi regla er brotin.


<< Til Baka

 


 
 
 



 

Hér er hægt að sjá komu- og brottfarartíma á flugvélum á Keflavíkurflugvelli.

:: Brottfarir

:: Komur

 
 
 
 


© Sigurbjörn Ragnarsson - allur réttur áskilinn
Hönnun vefs: Róbert Daníel Jónsson