Fullt nafn: Hálfdán
Ingólfsson
Aldur: 55 ára.
Starf: Flugstjóri hjá Landsflugi.
Hvernig skírteini ertu með og hvaða áritanir ertu með í því? ATPL/A, SE & ME flokksáritanir(piston), IR, NIT, Do228, DHC-6. Svo er ég með skírteini Fisflugmanns, sem er kúl - að vísu aðeins með áritun f. 3-ása fis, en það stendur til bóta í vor...
Númer skírteinis? 1429
Fyrst útgefið? 1973
Flugtímar í loggbókinni? Tæplega 7000, enda ekki starfað við flug nema ca. hálfa starfsævina.
Hvar lærðir þú til flugs? Flugskóla Helga Jónssonar og víðar.
Hvernig var fyrsta flugið þitt? Skrítið. Það var í C170 með Herði Guðmundssyni. Minnistæðast er að sitja lamaður með hendur (og kinnar) límdar á hnén í 60° beygju, og undrast hvernig Hörður gat athafnað sig eins og ekkert væri meðan ég var eiginlega hjálparvana vegna þyngslanna. Svo fékk ég að taka í, og eftir það var ekki litið um öxl...
Hversu mörgum tegundum af flugvélum hefur þú flogið? Ekki færri en 20, ekki fleiri en 40 nema fisin teljist með. Sem sagt – hef ekki hugmynd um það!
Áttu hlut í flugvél? Já, TF-POL (FR-172J Reims Rocket, sem er Skyhawk á sterum, með 210 hestöfl).
Skemmtilegasta flugvélin og afhverju? Fyrir utan Twin Otter (stærsta hundraðogfimmtían) hlýtur það að vera Helio Super Courier, sem hefur alveg magnaða hægflugs- og skammbrautareiginleika. Einu flygildin sem komast núorðið með tærnar þar sem Helio er með hælana eru kraftmestu fisin.
Lengsta flugferðin? Að ferja Twin Otter frá Akureyri til Nairobi í Kenya.
Erfiðasta flugferðin? Sennilega hefur það verið í fyrsta skipti sem ég flaug einn með lík (ímyndunaraflið, maður!). Svo er flugferð sem ég segi helst engum frá, ég skammast mín nefnilega ennþá fyrir vitleysuna þó liðnir séu a.m.k. tveir áratugir...
Fyrsta flugtengda vinnan? Flugmaður hjá Flugfélaginu Ernir, 1977.
Meðlimur í FÍA? Ég er bara “magur limur” eins og er (semsagt ekki “gildur limur”).
Hvar/hvert er skemmtilegast að fljúga? Á duglegum “sjortfíldara” á Hornströndum á góðviðrisdegi, sérstaklega ef það er líka stórstraumsfjara.
Hefur þú farið á einhverja flugsýningu? Hvar? Já, Paris Airshow nítjanhundruð áttatíu og eitthvað.
Er eitthvað sem þú vilt koma á framfæri sem ekki hefur komið fram í þessu viðtali? Ekkert af viti.
Hálfdán skorar á Hauk Reynisson, flugstjóra hjá Flugleiðum, til að svara næsta netviðtali.