Untitled Document
 :: Forsíða
 :: Fréttir
 :: Greinar
 :: Spjallið
 :: Myndasafn
 :: Ljósmyndakeppni
 :: Leikir
 :: Loftfaraskrá
 :: Auglýsingar
 :: Tenglasafn
 
 :: AIP-Flugmálahandbókin
 :: Notam
 :: Flugveður
 :: Flugvellir

Vefurinn Flugnet er hugsaður sem afþreyingar- og upplýsingarvefur fyrir flugmenn og áhugamenn um flug.

Vefurinn opnaði 12. janúar 2004.

Umsjónarmaður:
Sigurbjörn Ragnarsson

TOPP 10 VINSÆLUSTU TENGLARNIR!

Fara í tenglasafn >>
 

 




 


Deprecated: Function eregi() is deprecated in /home/flugnet/www/news/show_news.php on line 36

Deprecated: Function eregi() is deprecated in /home/flugnet/www/news/inc/shows.inc.php on line 43

Deprecated: Function eregi() is deprecated in /home/flugnet/www/news/inc/shows.inc.php on line 43

Warning: date() [function.date]: It is not safe to rely on the system's timezone settings. You are *required* to use the date.timezone setting or the date_default_timezone_set() function. In case you used any of those methods and you are still getting this warning, you most likely misspelled the timezone identifier. We selected 'America/New_York' for 'EDT/-4.0/DST' instead in /home/flugnet/www/news/inc/shows.inc.php on line 447
:: Netviðtalið: Orri Eiríksson
18.08.2005
Fullt nafn: Orri Eiríksson

Pilot Code: ORR (ekki nógu gamall til að vera bara með tvo)

Aldur: 40

Starf: Flugstjóri hjá Icelandair

Hvaða tegund skírteinis ertu með? ATPL

Hvaða áritanir ertu með í því? SEP, MEP, FI, CRI, FII, IRI, SA227, D-228, DHC-6, C-406/425, BE-90/99, F-50, B757/767, sumar af þeim eru ekki í gildi augljóslega.

Númer skírteinis? 2227

Fyrst útgefið? Sólóskírteini, júní 1982.

Flugtímar í loggbókinni? Ca 10000

Atvinnutækið? J-3-c-65 (Piper Cub) til B-767

Hvar lærðir þú til flugs og á hvaða árum? Fyrsta flug 1981 á AEY og tók svo CPL-ATPL 1986-7 í síðasta hópnum sem var fluttur nauðungarflutningum með rútu til Keflavíkur á hverjum morgni kl. 0715 frá Hlemmi.

Afhverju valdir þú flugið sem atvinnu? Vantaði pening meðan ég var í verkfræðideildinni í HÍ (flugkennsla og leiguflug eru jú svo vel borguð).

Fyrsta flugið? Man ekki vel eftir því, en það var á DC-3 frá AEY til HZK, held ég hafi verið 8 mánaða gamall. Fyrsta ferðin sem ég man eftir var á Gullfaxa (TF-FIE??) til CPH haustið 1969 og ég man að ég fékk að fara framm í. Mjög eftirminnilegt.

Áttu eða hefur þú átt hlut í flugvél? Hvernig? Hef átt nokkrar og er að gera upp Pitts-S1 og nokkrar PA-20. Hef einnig átt nokkrar svifflugur og á hluta í tveimur eins og er. Ég svona eins og hestamaður með flugvélaeignina, ég myndi taka eftir því ef það vantaði í stóðið en ég er ekki alveg með fjöldann á hreinu.

Hversu mörgum tegundum af flugvélum hefur þú flogið? Mótorlausum ca 10 Eins hreyfils ca 70 og fjölhreyfla ca 10.

Hver af þeim er sú skemmtilegasta og afhverju? Ekki auðvelt að velja, án mótors ASH-25 með einn Yak 55 og marga DHC-6.

Lengsta flugferðin og hvernig gekk hún? Milano-Havana 11 tímar.

Eftirminnilegasta flugferðin? Sem betur fer hef ég nú sloppið með skrekkinn hingað til og ekki lent í miklum hremmingum. Þó kemur fljótt upp í hugann ferð sem ég fór á Piper Cherokee frá Turku í Finnlandi til Roskilde með 90 tíma heildarreynslu, var alveg með hreinu hvað átti að gera allan tímann!!! Danirnir tveir sem voru með mér voru of þreyttir eftir gleði gærkvöldsins (þunnir) þannig að ég flaug.

Fyrsta flugtengda vinnan? Málaði flugvél fyrir Flugtak upp í blindflugsnámið. Fyrsti kennslutíminn minn var svo blindflugskennslutími sem ég kenndi hálftíma eftir að ég fékk skírteinið, hafði þá að vísu aldrei flogið blindflug. Ég tek það fram að þetta var fyrir JAA/JAR. Þetta var 1987.

Nú ert þú þekktur flugvélasmiður, hvað hefur þú komið nálægt mörgum vélum í smíði og hver af þeim er þín uppáhalds vél? Ég hef gert upp svolítið af svifflugum, síðan hef ég komið nærri ca 10 vélum og þá er ég að telja vélar sem ég hef komið nálægt meira en 20 tíma. Pittsinn er held ég sú best hannaða til að smíða, stærsta verkefnið sem ég hef komið nálægt er held ég Wacoinn fyrir Flugsögufélagið, við erum búnir að vera að vinna í henni í 7 ár og það gætu verið 10 ár eftir. Svo hef ég líka unnið smá við B-24 Liberator á Duxford, var þar einu sinni í tvær vikur að vinna.

Meðlimur í FÍA?

Hvar/hvert er skemmtilegast að fljúga? Þar sem hægt er að fljúga með slökkt á radioinu og hafa engan mótor.

Hefur þú farið á einhverja flugsýningu og hvar þá? Of margar segir eiginkonan stundum.
<< Til Baka
Prentvæn útgáfa

Flugmynda Leitarvél
Stærsta Flugmyndasafnið á Netinu
Flugvélategund... [ Hjálp ]
Flugfélag... [ Hjálp ]
Lönd / Flugvellir... [ Hjálp ]
Flokkur... [ Hjálp ]
Upphlaðið... [Hjálp]
Stikkorð... [ Hjálp ]
Með... [ Hjálp ]
Raða Eftir...
Takmörk...
Sýna...


Sýna einungis myndir sem eru til sölu.

Sýna myndir. [ Hjálp ]

 


 
 
 
 



 


 
   

 





© Sigurbjörn Ragnarsson - allur réttur áskilinn

Hönnun vefs: Róbert Daníel Jónsson