Untitled Document
 :: Forsíða
 :: Fréttir
 :: Greinar
 :: Spjallið
 :: Myndasafn
 :: Ljósmyndakeppni
 :: Leikir
 :: Loftfaraskrá
 :: Auglýsingar
 :: Tenglasafn
 
 :: Notam
 :: METAR
 :: SIGMET & TAF
 :: Flugvellir

Vefurinn Flugnet er hugsaður sem afþreyingar- og upplýsingarvefur fyrir flugmenn og áhugamenn um flug.

Vefurinn opnaði 12. janúar 2004.

Umsjónarmaður:
Sigurbjörn Ragnarsson

TOPP 10 VINSÆLUSTU TENGLARNIR!

Fara í tenglasafn >>
 

 




 

26.04.2004
Nokkrir áhugasamir strákar komu af stað flugfélagi sem átti sér enga hliðstæðu á Íslandi. Icelandair Virtual var stofnað vorið 2000 og hefur verið að stækka ört síðan. Fyrst fékk félagið nafnið Icelandair VA, sem stóð fyrir Virtual Airline, en um áramótin 2002 var nafni félagsins breytt um leið og ný og vönduð heimasíða var tekin í notkun.


Það voru Ingi Björn Jónsson og Halldór Búi Jónsson sem eru stofnendur félagsins, en þar sem Icelandair Virtual hefur breyst og þróast mikið á þeim rúmum 3 árum sem það hefur verið starfrækt hafa nokkrir áhugasamir bæst við í stjórn, enda mikið að gerast...

22.02.2004
Hér á eftir kemur smá dæmisaga þess efnis hvernig léleg fyrirflugsskoðun getur komið manni um koll. Þessi grein kom í Aviation Safety Letter, sem flugmálastjórnin í Kanada gefur út.


Þann 11. júní 2002, var flugvél af gerðinni Piper Chieftain (PA-31-350) flogið frá Gunisao Lake í Manitoba, til Winnipeg í Kanada. Um borð var einn flugmaður og sex farþegar. Kl. 09:13 að staðartíma, hóf flugvélin ILS-aðflug að braut 13 á Winnipeg International flugvellinum. Flugmaðurinn flaug aðflugið hraðar en venjulega og vel fyrir ofan aðflugsgeislann...

11.02.2004
Eftir þriggja vikna bið eftir að flughermisþjálfun lauk til að ljúka verklegri þjálfun var loksins komið að því sem allir höfðu beðið eftir.


Taka átti 6 snertilendingar á Boeing 747 á Manston flugvelli í UK áður en línuþjálfun tekur við.

Það er skemmst frá því að segja að umferðahringurinn var í 2000 fetum og tók um 10 mínútur hver hringur. Veðrið var hið ákjósanlegasta, vindur um 10 kts og 30 gráður á braut.

Hver og einn flaug sex hringi og er óhætt að segja að hver og einn einasti flugmaður í þessari “bumbu” hafi verið í sæluvímu yfir Ermasundi, með England á aðra hönd og á þá hægri glitti í strendur Frakklands...


Flugmynda Leitarvél
Stærsta Flugmyndasafnið á Netinu
Flugvélategund... [ Hjálp ]
Flugfélag... [ Hjálp ]
Lönd / Flugvellir... [ Hjálp ]