Untitled Document
 :: Forsíða
 :: Fréttir
 :: Greinar
 :: Spjallið
 :: Myndasafn
 :: Ljósmyndakeppni
 :: Leikir
 :: Loftfaraskrá
 :: Auglýsingar
 :: Tenglasafn
 
 :: Notam
 :: METAR
 :: SIGMET & TAF
 :: Flugvellir

Vefurinn Flugnet er hugsaður sem afþreyingar- og upplýsingarvefur fyrir flugmenn og áhugamenn um flug.

Vefurinn opnaði 12. janúar 2004.

Umsjónarmaður:
Sigurbjörn Ragnarsson

TOPP 10 VINSÆLUSTU TENGLARNIR!

Fara í tenglasafn >>
 

 




 

24.06.2008
Afbókanir og færri skammtímabókanir hjá innlendum fyrirtækjum í ferðaþjónustu veldur áhyggjum um afkomuna á næsta hausti. Fyrirhugaðar vinnustöðvanir flugumferðastjóra, gengissveiflur og hátt olíuverð valda einnig áhyggjum af þrengingum.

Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, Erna Hauksdóttir sagði í viðtali í kvöldfréttum RÚV að núþegar sé talsvert um afbókanir á ferðum og gistingu í sumar og minna um ferðamenn sem ekki hafi bókað langt fram í tímann.

„Menn hafa mjög miklar áhyggjur af haustinu. Bæði bókanalega séð og svo hafa flugfélögin boðað að þau muni draga úr flugi og það hefur áhrif á ferðaþjónustuna," sagði Erna.

Þetta kom fram á fréttavef Morgunblaðsins í dag.

24.06.2008
Margar flugvélar sem gert hafa garðinn frægan hérlendis voru til sýnis á Akureyrarflugvelli um helgina, þar sem Flugsafn Íslands efndi til hátíðar. Meðal þess sem gat að líta var þyrlan TF-SIF, sem bjargað hefur ótal mannslífum, en Landhelgisgæslan afhenti safninu hana til varðveislu.

Flugsafnið, sem er með aðsetur á Akureyrarflugvelli, var stofnað fyrir tæpum tíu árum. Þar eru varðveittir og sýndir munir sem tengjast flugi á Íslandi, sögu þess og þróun.

Horfa á myndskeið af vef Morgunblaðsins.

Þetta kom fram á vef Morgunblaðsins í dag.

24.06.2008

Mynd: Flugnet.com
Ferðamálasamtök Íslands segja að yfirvofandi verkföll flugumferðarstjóra, sem hefjast á föstudag, séu aðför að ferðaþjónustunni í landinu. Þá segja þau sorglegt að fámenn stétt hálaunafólks skuli ógna rekstraraðilum á Íslandi á þennan hátt.

Eins og fram hefur komið boða flugumferðarstjórar 20 fjögurra tíma vinnustöðvanir á tímabilinu 27. júní til 20. júlí til þess að knýja á um nýjan kjarasamning. Við þessu hafa fjölmargir aðilar brugðist, nú síðast Ferðamálasamtök Íslands.

Í tilkynningu frá þeim segir að á undanförnum árum hafi fjöldi frumkvöðla byggt upp margvíslega ferðaþjónustu um land allt, gistiaðstöðu, veitingasölu og fjölbreytta afþreyingu með ærnum tilkostnaði og lánum. Þessi starfsemi séu nú í uppnámi vegna verkfallsboðunar flugumferðarstjóra...


  • Fara á spjallborð >>

  • Flybe offers through-ticketing

  • Star Alliance lounge open in T1

  • Star Alliance corporate programme expands

  • TMCs giving airlines easy ride on delays and cancellations

  • Emirates news: Durban, Alexandria, LA and San Francisco.

  • Flybe anticipates record profits

  • Incidentally: Say what?

  • Comment: BA fights back

  • Etihad adds service

  • Lufthansa starts to Cornwall


  • Flugmynda Leitarvél
    Stærsta Flugmyndasafnið á Netinu
    Flugvélategund... [ Hjálp ]
    Flugfélag... [ Hjálp ]